Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Desember 2026 á dagatali
          Fréttir

          Des­em­ber­upp­bót

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Desemberuppbót fyrir árið 2026 skal greidd 1. desember. Við útreikning uppbótarinnar er miðað við starfshlutfall og starfstíma samkvæmt ákvæðum viðkomandi kjarasamnings. Upphæðin er föst krónutala og tekur ekki breytingum samkvæmt öðrum ákvæðum kjarasamnings.

          Félagsfólk er hvatt til að fylgjast með að desemberuppbótin sé rétt greidd út miðað við kjarasamning. Hafi starfsmaður gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall og starfstíma.

          Desemberuppbót árið 2026

          • Ríkið: 114.000 kr.
          • Reykjavíkurborg: 127.000 kr.
          • Önnur sveitarfélög en Reykjavíkurborg: 145.000 kr.
          • Samtök atvinnulífsins (almennur vinnumarkaður): 114.000 kr.
          • Félag atvinnurekenda: 114.000 kr.
          • RARIK ohf.: 132.400 kr.
          • Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu: 114.000 kr.

          Hér má finna frekari upplýsingar um desemberuppbótina. Ef einhverjar spurningar vakna þá er hægt að hafa samband við skrifstofu Visku.