Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          viska_1_mai_2025
          Fréttir

          Dag­skrá á bar­áttu­degi launa­fólks 1. maí

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Félagsfólki í Visku er boðið að koma saman í anddyri Bíó Paradísar og gæða sér á hamborgurum frá Búllunni áður en haldið verður í kröfugöngu frá Skólavörðuholti.

          Anddyri Bíó Paradísar verður opnað kl. 11:00 og mæting er uppi á Skólavörðuholti kl. 13:00. Kröfugangan leggur af stað þaðan kl. 13:30. Gengið verður niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi þar sem hátíðardagskrá hefst kl. 14:00.

          Dagskrá

          13:00

          Safnast saman á Skólavörðuholti

          13:30

          Gangan hefst og verður gengið niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.

          14:00

          Baráttufundur hefst á Ingólfstorgi:

          Fundarstjóri er Felix Bergsson fjölmiðlamaður og leikari. Halla Gunnarsdóttir formaður VR ávarpar fundinn og Inspector Spacetime tekur lagið. Í lok fundar verður samsöngur.

          Dagskráin verður táknmálstúlkuð.