
Bloomberg fjallar um greiningu Visku: Ísland orðið dýrasta land í heimi
Umfjöllun Bloomberg undirstrikar þá athygli sem greiningin hefur þegar vakið, bæði hér á landi og erlendis. Á undanförnum dögum hefur verið fjallað ítarlega um niðurstöðurnar í íslenskum fjölmiðlum, meðal annars í Kastljósi RÚV, á Vísi og í Morgunútvarpi Bylgjunnar, þar sem Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku kynnti helstu niðurstöður greiningarinnar.

Bloomberg fjallaði um greiningu Visku á háu verðlagi á Íslandi og þeirri niðurstöðu að Ísland sé nú dýrasta land í heimi.
Greiningin er hluti af víðtækri hagsmunagæslu Visku, þar sem lögð er áhersla á vandaða gagnaöflun, tölfræðilega greiningu og málefnalega framsetningu upplýsinga sem nýtast í samfélagsumræðu og í samtali við stjórnvöld. Markmiðið er að leggja traustan grunn að umræðu um stöðu efnahagsmála í landinu með áherslu á lífskjör launafólks og samkeppnishæfni atvinnulífsins.
Greiningar Visku, sem sjá má á undir hagsmunagæsla eru liður í þeirri viðleitni félagsins að stuðla að faglegri umræðu um lífskjör á Íslandi á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar. Sú vinna miðar meðal annars að því að styðja samtal aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um nauðsynlegar aðgerðir til að verja kaupmátt launafólks á næstu mánuðum, þar á meðal til að freista þess að koma í veg fyrir að uppsagnarákvæði kjarasamninga á almennum vinnumarkaði virkist í haust.
Viska er rétt rúmlega tveggja ára gamalt félag. Það er því sérstaklega ánægjulegt að sjá að greiningar félagsins veki athygli, skapi umræðu og rati inn í alþjóðlega fjölmiðlaumfjöllun. Sú athygli er jafnframt hvatning til að halda áfram að byggja upp öfluga greiningargetu og leggja fram gögn og rök sem nýtast í samfélagsumræðu.

