Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Viska skrifað í sandinn, mynd tekið á ská
          Fréttir

          Boð­að er til að­al­fund­ar Visku

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Boðað er til aðalfundar Visku 21. apríl 2026 frá kl. 16:00 til 17:30. Fundurinn er bæði stað- og fjarfundur og er haldinn í fundarsal Visku á 3. hæð í Borgartúni 27.

          Félagar eru beðnir um að skrá sig á fundinn og hafa þegar fengið sent fundarboð í tölvupósti með krækju í skráningu. Ef félagi hefur ekki fengið sendan tölvupóst er hægt að hafa samband við skrifstofu Visku.

          Dagskrá

          Á dagskrá eru hefðbundin störf aðalfundar skv. lögum félagsins:

          1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
          2. Skýrsla stjórnar kynnt
          3. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar, sbr. 22. grein
          4. Ákvörðun um félagsgjöld, sbr. 5. grein
          5. Lagabreytingar, sbr. 26. grein
          6. Niðurstöður úr rafrænum kosningum til formanns og stjórnar kynntar, sbr. 10. grein
          7. Niðurstöður úr rafrænum kosningum í stjórnir kjaradeilda kynntar, sbr. 10 grein
          8. Önnur mál

          Tillögur

          Fyrir fundinn liggur eftirfarandi tillaga frá stjórn:

          Tillaga að stofnun kjaradeildar talmeinafræðinga

          Tillögur félagsfólks fyrir aðalfund skulu vera skriflegar og hafa borist stjórn eigi síðar en sjö sólarhringum fyrir fundinn. Hægt er að senda tillögur í pósti á viska@viska.is.

          Fundargögn

          Öll gögn fundarins, þar á meðal ársreikningur og skýrsla stjórnar, munu liggja fyrir í síðasta lagi 20. apríl á vefsíðu Visku

          Kosningar til stjórnar

          Framboðsfrestur til stjórnarsetu í Visku var til og með 30. mars. Kosið er um þrjá stjórnarmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs. Þau þrjú sem eru efst í kjöri til stjórnar eru kosin til tveggja ára og næstu tvö þar á eftir eru varamenn til eins árs. Athugið að til að stuðla að jafnri kynjaskiptingu þá er um fléttukosningu að ræða, sjá nánar í 10. gr. laga Visku.

           Ellefu aðilar skiluðu inn framboði og hefjast kosningar 12:00 á hádegi þann 9. apríl.

          Hér má nálgast allar upplýsingar um frambjóðendur.

          Fyrir frekari fyrirspurnir er hægt að hafa samband við skrifstofu Visku.