
Á þriðja hundrað skráð sig á biðlista íbúafélags Visku og FÍN
Í vor á þessu ári gerðu Viska – stéttarfélag og FÍN (Félag íslenskra náttúrufræðinga) samkomulag um stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags, fyrst stéttarfélaga háskólamenntaðra. Samkomulagið markar tímamót fyrir húsnæðisöryggi háskólamenntaðra á vinnumarkaði, en eins og staðan er í dag hafa um 40 þúsund háskólamenntaðir utan ASÍ og BSRB ekkert aðgengi að slíkum úrræðum.
Opið fyrir skráningu
Opnað hefur verið fyrir skráningu á biðlista á vef félagsins, Íbúðafélag.is. Opið er fyrir skráningar á listann til 31. desember 2026. Forgangsröð á biðlista verður ákveðin með handahófskenndum hætti og fá þau sem skrá sig upplýsingar um hvar þau eru í röðinni á biðlistanum eigi síðar en 15. janúar. Áætlað er að úthluta fyrstu íbúðum félagsins á árinu 2027.Stjórn félagsins skipa Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður, Þorkell Heiðarsson varaformaður, Snorri Páll Blöndal gjaldkeri, Bragi Bergsson og Gerður Jónsdóttir. Stjórn hefur mikinn hug á að vinna hratt og vel að uppbyggingu fjölbreyttra húsnæðiskosta fyrir félagsfólk.
11% af félagsfólki FÍN og Visku falla undið viðmið um almennar íbúðir
„Það er okkur mikil gleði og stór áfangi að vera búin að opna fyrir skráningu á biðlista félagsins,“ segir Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, formaður stjórnar. „Með stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags stígum við í Visku og FÍN mikilvægt fyrsta skref í átt að auknu húsnæðisöryggi og réttlátara húsnæðiskerfi fyrir félagsfólkið okkar.“
Þorkell Heiðarsson, varaformaður stjórnar, tekur undir með Brynhildi og segir: „Í umræðu um kjör háskólamenntaðra er ítrekað tönnlast á þeirri mýtu að allt háskólamenntað fólk falli utan tekju- og eignaviðmiða laga um almennar íbúðir. Það er af og frá. Í könnun sem Viska og FÍN framkvæmdu við stofnun félagsins kemur í ljós að 11% af rúmlega 8.000 félagsfólki félaganna tveggja falla undir núverandi viðmið um almennar íbúðir. Hér er því um að ræða gífurlega mikilvægt framtak fyrir okkar hóp.“
