Beint í efni
Vilhjálmur Hilmarsson
Fréttir

Vil­hjálm­ur Hilm­ars­son ráð­inn til Visku

Höfundur

Gauti Skúlason

Gauti Skúlason

samskipti og markaðsmál

Vilhjálmur hefur verið ráðinn sem hagfræðingur til Visku og kemur til starfa í haust.

Hagfræðingur Visku er nýtt stöðugildi sem miðar að því að efla almenna hagsmunagæslu félagsins fyrir millitekjuhópa á vinnumarkaði. Ásamt því að sinna greiningum á sviði efnahags- og vinnumarkaðsmála mun hagfræðingur Visku hafa umsjón með skrifum á umsögnum um lagafrumvörp, útgáfu á sviði kjaramála og leiða kjaraviðræður ásamt formanni og lögmanni félagsins. Viska hefur mikinn hug að vera virkur þátttakandi í samfélagsumræðunni um kjaramál og gegnir hagfræðingur Visku lykilhlutverki í því starfi.

Vilhjálmur lauk B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2010 og M.Sc. gráðu í hagfræði frá sama skóla árið 2012. Hann hefur starfað sem hagfræðingur BHM frá árinu 2020 og setið í fjölmörgum nefndum og starfshópum tengdum málefnum vinnumarkaðarins. Áður starfaði hann sem sérfræðingur í greiningum hjá Samtökum iðnaðarins og samgönguhagfræðingur hjá verkfræðistofunni Mannviti.

„Það er mikill styrkur fyrir Visku að fá Vilhjálm til liðs við okkur enda hefur hann ómetanlega reynslu af málefnum vinnumarkaðarins. Ráðning hans er áfangi í að byggja Visku upp sem sterk hagsmunasamtök fyrir millitekjuhópa að norrænni fyrirmynd en að okkar mati hefur vantað þá rödd í samfélagsumræðuna. Þar ætlar Viska sér að vera og sérþekking Vilhjálms mun styrkja okkur í þeirri vegferð,“ segir Georg Brynjarsson, framkvæmdastjóri Visku.