Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Framboð til stjórnar

          Sig­urð­ur Trausti Trausta­son

          Félags-, kjara- og réttindamál hafa lengi verið mér hugleikin. Réttlætiskennd og vilji til að bæta stöðu annarra hafa orðið til þess að ég hef tekið virkan þátt í félagsstörfum. Ég tók þátt í starfi Fræðagarðs frá 2011 og sat í stjórn félagsins 2016–2022.

          Sigurdur_Trausti

          Ég hef fylgst vel með stofnun og uppbyggingu Visku og finn sterklega að mig langar að leggja mitt af mörkum. Því býð ég mig fram til stjórnar Visku.

          Reynslan sem ég hef aflað mér í félags- og stjórnunarstörfum nýtist vel. Ég hef setið í samninganefndum með ríki og borg, tekið þátt í stefnumótun og unnið að kynningarmálum. Viska er í lykilstöðu eftir sameiningu félaganna og getur náð langt með sameiginlegu átaki. Mér finnst mikilvægt að félagið haldi áfram að vaxa, virki fjölbreytta krafta félagsmanna og efli sérstaklega félagsnet og kjaradeildir — þar liggur grunnurinn að sterkri grasrót.

          Menntun, BA-gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands og MA-gráða í safnafræði frá háskólanum í Leicester. Ég starfa sem deildarstjóri safneignar og rannsókna hjá Listasafni Reykjavíkur. Áður starfaði ég m.a. hjá Rekstrarfélagi Sarps og Listasafni Einars Jónssonar bæði sem starfsmaður og svo formaður stjórnar. Ég hef setið í fjölda stjórna og nefnda á mínu fagsviði sem og sinnt trúnaðarstörfum innan BHM.

          Bestu kveðjur,

          Sigurður Trausti Traustason

          Kjóstu hér