
Við starfsmissi – hvað þarf að hafa í huga?
Ef þér er sagt upp störfum eða þér boðinn starfslokasamningur er mikilvægt að hafa samband við stéttarfélagið sem fyrst. Félagið getur farið yfir uppsagnarbréf og/eða starfslokasamning áður en þú undirritar og aðstoðað þig við að meta réttindi þín og næstu skref.
Ekki er ráðlegt að undirrita starfslokasamning á staðnum án þess að fá tækifæri til að fara yfir efni hans.
Ef uppsögnin er sögð stafa af skipulagsbreytingum, hagræðingu eða niðurlagningu starfs er mikilvægt að óska eftir skýrum upplýsingum um ástæður uppsagnarinnar og hvernig ákvörðunin var tekin.
Rétturinn til skriflegs rökstuðnings getur verið mismunandi eftir því hvort viðkomandi starfar hjá ríki, sveitarfélagi eða á almennum vinnumarkaði og hvaða lög og kjarasamningar eiga við. Til dæmis gilda sérstakar reglur um rökstuðning stjórnvaldsákvarðana og ríkisstarfsmenn njóta sérstakra réttinda samkvæmt starfsmannalögum.
Því er gott að fá stéttarfélagið til að meta málið áður en brugðist er við uppsögninni.
Fáðu staðfest hver uppsagnarfresturinn er og hvort þú eigir að vinna út uppsagnarfrestinn eða sért leyst/ur undan vinnuskyldu.
Farðu jafnframt yfir allt sem kann að vera óuppgert við starfslok, meðal annars:
- laun á uppsagnarfresti,
- áunnið og ótekið orlof,
- ógreidda yfirvinnu eða vinnuskil,
- fasta yfirvinnu og aðrar reglulegar greiðslur,
- desember- og orlofsuppbætur eftir því sem við á,
- útlagðan kostnað og önnur óuppgerð réttindi,
- réttindi samkvæmt ráðningarsamningi, stofnanasamningi eða kjarasamningi.
- Launaábyrgð vegna gjaldþrots.
Starfsmissir getur haft áhrif á ýmis réttindi sem tengjast stéttarfélagsaðild. Því er gott að kanna sérstaklega réttindi í sjúkrasjóði, starfsmenntunar- eða menntunarsjóði og öðrum sjóðum félagsins.
Einnig er gott að kanna hvort einhver réttindi þurfi að nýta innan ákveðins tíma eftir að starfi lýkur.
Ef þú verður atvinnulaus að uppsagnarfresti loknum skaltu kanna rétt þinn til atvinnuleysisbóta og sækja um hjá Vinnumálastofnun.
Mikilvægt er að kanna tímanlega hvaða gögn þurfa að fylgja umsókninni og hvort starfslokasamningur eða önnur atriði við starfslokin geti haft áhrif á bótarétt. Þess vegna getur verið sérstaklega mikilvægt að láta stéttarfélagið fara yfir starfslokasamning áður en hann er undirritaður.
Atvinnuleitendur á skrá hjá Vinnumálastofnun geta meðal annars fengið:
- einstaklingsbundna atvinnuráðgjöf og aðstoð við atvinnuleit,
- aðstoð við ferilskrá, kynningarbréf og undirbúning atvinnuviðtala,
- miðlun lausra starfa,
- hæfnimat og gerð áætlunar um atvinnuleit,
- námskeið, til dæmis í stafrænni færni, íslensku og atvinnuleit,
- styrk vegna starfstengds náms eða námskeiðs, ef ráðgjafi metur það líklegt til að bæta atvinnumöguleika,
- starfsþjálfun eða reynsluráðningu á vinnustað,
- ráðningarstyrk til atvinnurekanda sem ræður atvinnuleitanda,
- tímabundin störf eða átaksverkefni,
- atvinnutengda starfsendurhæfingu,
- sjálfboðaliðastarf sem viðurkennt vinnumarkaðsúrræði,
- sérhæfða ráðgjöf og atvinnu með stuðningi fyrir fólk með skerta starfsgetu,
- EURES-ráðgjöf vegna starfa annars staðar á EES-svæðinu.
Fólk sem fær greiddar atvinnuleysisbætur getur óskað eftir áframhaldandi greiðslu félagsgjalds til stéttarfélagsins. Við umsókn um atvinnuleysisbætur þarf þá að óska sérstaklega eftir því að félagsgjald verði dregið af bótunum og skilað til viðkomandi stéttarfélags.
Með áframhaldandi aðild getur félagsfólk viðhaldið mikilvægum réttindum á meðan atvinnuleit stendur, svo sem aðgangi að þjónustu og ráðgjöf félagsins og réttindum í sjóðum, eftir þeim reglum sem um þá gilda.
Viska greiðir fyrir í sjúkrasjóð og starfsmenntunarsjóð fyrir félagsfólk á atvinnuleysisskrá.
Hjá BHM heldur atvinnulaus félagsmaður almennt réttindum í sjúkrasjóði í allt að eitt ár frá upphafi atvinnuleysis, enda sé félagsgjald greitt. Félagið getur viðhaldið réttindunum lengur meðan atvinnuleysisbætur eru greiddar ef það greiðir viðeigandi iðgjöld til sjóðsins. Sambærileg regla gildir um Styrktarsjóð BHM.
Aðstoð Visku vegna starfsloka:
- lögmæti uppsagnar,
- uppsagnarfrest og laun á uppsagnarfresti,
- uppgjör orlofs og annarra launakrafna,
- hópuppsagnir,
- forgangsrétt til starfs,
- launaábyrgð vegna gjaldþrots,
- og rétt til atvinnuleysisbóta.
