Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Þekking sem vinnur með þér

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Kona og maður með kaffibolla brosa og tala saman
          Viskumolar

          Ég er að fara í starfs­manna­sam­tal

          Höfundur

          Katrín Björg Ríkarðsdóttir

          Katrín Björg Ríkarðsdóttir

          kjara- og réttindamál

          Á vinnumarkaði er algengt að starfsfólki sé boðið í samtal við yfirmann til að ræða um starfið, líðan, verkefni, starfsaðstæður, starfsþróun og markmið. Samtölin geta borið mismunandi heiti eins og t.d. starfsmannasamtal, starfsþróunarsamtal, frammistöðumat eða launaviðtal . Inntak samtalsins getur því verið ólíkt eftir vinnustöðum.

          Mikilvægt er að undirbúa sig vel fyrir samtal af þessu tagi. Vinnuveitendur boða gjarna til samtals með formlegum hætti og afhenda starfsfólki eyðublað sem gert er ráð fyrir að sé fyllt út fyrir fram. Gefðu þér tíma til að velta fyrir þér hverju þú vilt koma á framfæri í samtalinu.

          Þetta er þitt tækifæri til að ræða starfið þitt, verkefni, ábyrgð, starfsaðstæður, starfsþróun og væntingar til framtíðar. Ef starfið þitt hefur breyst, ábyrgð aukist eða starfslýsing er ekki lengur í samræmi við raunveruleg verkefni er mikilvægt að koma því skýrt á framfæri.

          Hvernig get ég undirbúið mig?

          Áður en þú mætir í samtalið getur verið gagnlegt að velta eftirfarandi fyrir sér:

          • Hver eru helstu verkefnin mín í dag?
          • Hefur starfið mitt breyst frá síðasta samtali eða frá ráðningu?
          • Er starfslýsingin mín í samræmi við raunveruleg verkefni og ábyrgð?
          • Hef ég tekið að mér ný verkefni eða aukna ábyrgð?
          • Hvað gengur vel í starfinu og hvað mætti betur fara?
          • Eru atriði í starfsumhverfinu sem hafa áhrif á líðan, álag eða árangur?
          • Hvaða fræðslu, símenntun eða starfsþróun þarf ég til að sinna starfinu vel?