Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Kjaradeildir

          Saga kjara­deild­ar tal­meina­fræð­inga

          Viska hefur verið stéttarfélag talmeinafræðinga lengi og var fyrsti faghópurinn sem var stofnaður innan félagsins.

          Árið 2025 var tekin sú ákvörðun á aðalfundi Félags talmeinafræðinga á Íslandi að óska þess að stofnuð yrði sérstök kjaradeild fyrir talmeinafræðinga til að fylgjast með og gæta hagsmuna félagsfólks FTÍ sem greiða stéttarfélagsgjöld til Visku. Var stofnað til deildarinnar á stjórnarfundi Visku hið sama ár og í fyrstu stjórn skipaðar Linda Björk Markúsardóttir formaður, Kristlaug Stella Ingvarsdóttir, Rannveig Rós Ólafsdóttir og Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir.

          Á aðalfundi Visku 2026 verður formlega lögð fram tillaga um stofnun kjaradeildar talmeinafræðinga, og ef sú tillaga er samþykkt á fundinum fer fram rafræn kosning um stjórn deildarinnar meðal þess félagsfólks sem skráð er í deildina.