Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Félagsnet

        Fé­lagsnet tákn­mál­stúlka

        Táknmálstúlkar vinna við að túlka við allar aðstæður daglegs lífs. Táknmálstúlkar í Visku geta skráð sig í félagsnet táknmálstúlka.

        Félagsnet táknmálstúlka innan Visku er vettvangur þeirra sem vilja starfa að kjaramálum táknmálstúlka. Megintilgangur hópsins er að standa vörð um kjör og réttindi táknmálstúlka og endurmenntun þeirra. 

        Talsmaður táknmálstúlka í fulltrúaráði Visku er Agnes Steina.

        Hver erum við?

        Táknmálstúlkar vinna við að túlka við allar aðstæður daglegs lífs. Verkefni táknmálstúlka má því finna víða í samfélaginu þó flest séu innan skólakerfisins í tengslum við menntun heyrnarlausra á öllum skólastigum. 

        Önnur verkefni tengjast þjónustu hins opinbera, þátttöku í atvinnulífi og frístundastarfi eða viðburðum á borð við fyrirlestra, kirkjuathafnir, námskeið, læknisviðtöl og meðferðir, ráðstefnur, fundi og samkomur.