Andri Steinn Jóhannsson
Ég heiti Andri Steinn Jóhannsson, ég er 42 ára og hef verið félagsmaður í Visku frá árinu 2022. Ég er búsettur í Garðabæ ásamt eiginkonu minni og dóttur.

Ég hef starfað á sviði upplýsingatækni síðastliðin 23 ár. Ég hef verið í eigin rekstri og stofnaði fyrirtækið Datatech, sem veitir sérhæfða þjónustu við gagnabjörgun. Ég hef einnig starfað við rekstur fjártæknikerfa, sem tæknimaður og sem kerfisstjóri og við þjónustu. Síðastliðin fjögur ár hef ég starfað við stafrænar rannsóknir hjá Lögreglunni.
Ég er með Executive MBA-gráðu frá UHI háskólanum í Perth, Skotlandi, þar sem lögð var áhersla á stefnumótun, stjórnun, nýsköpun og sjálfbærni. Ég útskrifaðist þaðan í vetur með fyrstu einkunn. Þar áður hafði ég lokið við ýmis fagnámskeið í kerfisfræði, stafrænum rannsóknum, rekstri upplýsingatækni og netkerfa o.fl.
Ég tel að reynsla mín, bæði af opinberum og almennum vinnumarkaði, sem og sjálfstæður atvinnurekandi, geti nýst félagsmönnum Visku vel. Ég hef sérstakan áhuga á stafrænni þróun, nýsköpun og umbótaverkefnum á því sviði. Ég vil leggja mitt af mörkum til að efla félagið, og stuðla að öflugri hagsmunagæslu fyrir alla félagsmenn. Jafnframt tel ég mikilvægt að ríkisstarfsmenn eigi sinn fulltrúa í stjórn Visku sem þekkir þeirra starfsumhverfi og hefur metnað til að bæta kjör þeirra.