Unnar Geir Unnarsson
Ég býð mig fram til stjórnar Visku með það að markmiði að leggja mitt af mörkum til öflugs og framsækins fagfélags sem styður við fjölbreyttan hóp félagsfólks í síbreytilegu starfsumhverfi.

Ég hef víðtæka reynslu af stjórnun, stefnumótun og verkefnastjórnun innan menningar- og opinbera geirans. Í starfi mínu sem deildarstjóri hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur hef ég leitt þróunarverkefni, stýrt fjölbreyttum teymum og unnið markvisst að bættri þjónustu og nýsköpun. Ég er með meistaragráðu í menningarstjórnun og diplómu í opinberri stjórnsýslu, sem nýtist vel í stefnumótun og hagsmunagæslu. Ég hef einnig reynslu af úthlutunar- og nefndarstörfum þar sem ég hef unnið með gagnsæi og skýra forgangsröðun að leiðarljósi. Þar hef ég öðlast góða innsýn í mikilvægi sanngjarnrar ákvarðanatöku og ábyrgðar í opinberu og faglegu samhengi.
Ég hef brennandi áhuga á að styrkja stöðu félagsfólks Visku, efla samtal og samstöðu og stuðla að því að félagið sé virkur og sýnilegur vettvangur fyrir réttindi og velferð félagsfólks. Ég legg áherslu á skýra sýn og lausnamiðaða nálgun í samstarfi.