Beint í efni
Kjaraeildir

Saga kjara­deild­ar bóka­safns- og upp­lýs­inga­fræð­inga

Kjaradeild bókasafns- og upplýsingafræðinga er ein af kjaradeildum Visku stéttarfélags og sinnir kjara- og réttindamálum félagsfólks sem hefur menntað sig eða stundar nám í bókasafns- og upplýsingafræðum.

Deildin var stofnuð árið 2023 við sameiningu Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga (SBU) inn í Visku, en rætur hennar ná aftur til ársins 1973 þegar Félag bókasafnsfræðinga var stofnað. Þann 8. apríl 1999 sameinaðist félagið Bókavarðafélagi Íslands og varð að sjálfstæðu stéttarfélagi, SBU, sem var aðili að Bandalagi háskólamanna (BHM). Þann 2. nóvember 2023 sameinaðist SBU í Visku ásamt tveimur öðrum systurfélögum innan BHM, Félagi íslenskra félagsvísindamanna (FÍF) og Fræðagarði.

Kjaradeild bókasafns- og upplýsingafræðinga var stofnuð á fyrsta stjórnarfundi Visku og var fyrsta stjórn deildarinnar skipuð stjórnarfólki SBU. Á fyrsta aðalfundi Visku þann 29. apríl 2025 var stofnun kjaradeildarinnar svo formlega samþykkt af félagsfólki Visku.