Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Þekking sem vinnur með þér

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Ísland og Evrópusambandið fánar

          Höfundur

          Vilhjálmur Hilmarsson

          Vilhjálmur Hilmarsson

          hagfræðingur Visku

          70% fé­lags­fólks Visku vill klára að­ild­ar­við­ræð­ur við ESB

          Um 70% félagsfólks Visku er hlynnt því að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og 78% þeirra sem ætla að kjósa í lok vikunnar hyggjast segja „já“ við áframhaldandi viðræðum. Þótt mikill vilji sé til að klára viðræðurnar er fólk ekki búið að gera upp hug sinn um inngöngu í ESB. Aðeins 45% eru hlynnt inngöngu Íslands í ESB á þessari stundu en 34% segjast óviss. Fólk virðist gera skýran greinarmun á því að ljúka aðildarviðræðum og að taka afstöðu til aðildar Íslands að ESB.

          Þetta er meðal þess sem kemur fram í könnun Visku sem framkvæmd var meðal um 6.000 sérfræðinga innan félagsins í júlí 2026. Um 1.400 svör af opinberum- og almennum vinnumarkaði bárust frá fólki í fjölbreyttum störfum á öllum aldri.

          70% félagsfólks hlynnt því að klára viðræður – þar af 78% þeirra sem hyggjast kjósa

          Þegar spurt var hversu hlynnt eða andvígt fólk væri þeirri vegferð að klára aðildarviðræður voru svörin nokkuð afgerandi. 70% eru hlynnt því að viðræður verði kláraðar, þar af 78% þeirra sem ætla að kjósa í atkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst. Athygli vekur hversu hátt hlutfall hefur gert upp hug sinn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna en aðeins 5% líklegra kjósenda sögðust hvorki hlynnt né andvíg í júlí síðastliðnum.

          45% myndu kjósa með inngöngu í ESB en 34% óviss

          Þegar spurt var hvernig fólk myndi kjósa um hugsanlega inngöngu í ESB í seinni þjóðaratkvæðagreiðslu, ákveði þjóðin að halda áfram aðildarviðræðum, horfir málið öðruvísi við. Um 45% segist munu kjósa með inngöngu en 34% segjast óviss. Þegar afstaða til inngöngu er brotin frekar niður, kemur í ljós að aðeins 63% þeirra sem vilja klára aðildarviðræður á þessu stigi eru viss um að þau muni kjósa með inngöngu. Bendir það til þess að stór hluti vilji meiri upplýsingar um kosti og galla aðildar áður en afstaða er tekin til inngöngu.

          Viska mun upplýsa félagsfólk um kosti og galla aðildar ef ákveðið verður að halda áfram viðræðum

          Að lokum var félagsfólk Visku spurt hvort það vildi að félagið yrði áberandi í þjóðfélagsumræðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar og hvort félagsfólk vildi upplýsingar um kosti og galla aðildar. Meirihluti eða 75% vill að Viska verði áberandi í þjóðfélagsumræðunni og 78% vill upplýsingaefni frá félaginu um kosti og galla aðildar.

          Viska mun þó ekki fjalla um kosti og galla aðildar að ESB að þessu sinni. Ástæðan er einföld: Þjóðin er ekki að taka afstöðu til aðildar að ESB heldur til þess hvort ljúka eigi aðildarviðræðum og leggja niðurstöðuna í dóm þjóðarinnar síðar meir.

          Verði niðurstaðan á laugardag sú að halda viðræðunum áfram mun Viska leggja áherslu á að félagsfólk fái vandaðar, hlutlægar og yfirvegaðar upplýsingar um kosti og galla aðildar í aðdraganda seinni þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Hvort sem ætlunin er að segja já eða nei á laugardag hvetur Viska alla til að nýta kostningaréttinn og hafna upplýsingaóreiðu. Virkt lýðræði byggir á því að kjósendur hafi sem bestar upplýsingar þegar þeir taka afstöðu til mikilvægra mála sem varða framtíð Íslands.