Lífeyrisráðgjöf Visku
Hjá Visku færðu persónulega og óháða lífeyrisráðgjöf. Ráðgjöfin er veitt af sérfræðingi Visku sem hefur eingöngu þína hagsmuni að leiðarljósi.
Félagsfólk í Visku getur bókað tíma í ráðgjöf hér og athugaðu að maki þinn er velkominn með í för. Hægt er að skrá sig í Visku með því að smella hér.
Hvað felst í ráðgjöfinni?
Þú færð faglega greiningu á þinni stöðu með skýrri yfirsýn yfir:
- Greiðslur frá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun
- Skattalega stöðu við starfslok
- Réttindastaða maka og möguleika á sameiningu réttinda
- Áhrif aldurs á lífeyrisgreiðslur og bestu tímasetningu starfsloka
- Samspil séreignar og samtryggingar – og hvað hentar þér best
- Kostina og gallana við að taka út sparnað áður en starfslok renna upp
Allar ráðleggingar byggja á traustum gögnum og opinberum upplýsingum – án tengsla við lífeyrissjóði, tryggingafélög eða aðra markaðsaðila.
Persónuvernd
Til að veita góða ráðgjöf þarf að afla ákveðinna upplýsinga. Allar persónuupplýsingar eru unnar með fyllsta öryggi í samræmi við persónuverndarstefnu Visku. Niðurstöðurnar eru varðveittar á öruggan hátt og sendar beint til þín í gegnum þitt svæði á Mín Viska.