Launagreiðendur
Viska leggur áherslu á gott samstarf við launagreiðendur síns félagsfólks.
Félagsgjald
Í Visku eru félagsgjöld 0,95% af heildarlaunum félagsfólks á mánuði. Þau ber að draga mánaðarlega af launum og vinnuveitandi skilar þeim til stéttarfélags. Stéttarfélagsnúmer Visku er 679.
Mótframlag launagreiðanda í sjóði
- Styrktarsjóður BHM 0,75%
- Orlofssjóður BHM 0,25%
- Starfsmenntunarsjóður BHM 0,22%
- Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,70%
- Sérstakt iðgjald skv. bókun 1 í kjarasamningi 0,10%
- Framlag í VIRK, starfsendurhæfingarsjóð er 0,1% af heildarlaunum og er innheimt af lífeyrissjóði
- Styrktarsjóður BHM 0,75%
- Orlofssjóður BHM 0,25%
- Starfsmenntunarsjóður BHM 0,22%
- Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,70%
- Vísindasjóður 1,50% af dagvinnulaunum
- Framlag í VIRK, starfsendurhæfingarsjóð er 0,1% af heildarlaunum og er innheimt af lífeyrissjóði
- Styrktarsjóður BHM 0,75%
- Orlofssjóður BHM 0,25%
- Starfsmenntunarsjóður BHM 0,22%
- Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,70%
- Vísindasjóður 1,5% af dagvinnulaunum
- Framlag í VIRK, starfsendurhæfingarsjóð er 0,1% af heildarlaunum og er innheimt af lífeyrissjóði
- Sjúkrasjóður BHM 1%
- Orlofssjóður BHM 0,25%
- Starfsmenntunarsjóður BHM 0,22%
- Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,70% valkvætt gjald
- Framlag í VIRK, starfsendurhæfingarsjóð er 0,1% af heildarlaunum og er innheimt af lífeyrissjóði
- Sjúkrasjóður BHM 1% valkvætt gjald
- Orlofssjóður BHM 0,25% valkvætt gjald
- Starfsmenntunarsjóður BHM 0,22% valkvætt gjald
- Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,70% valkvætt gjald
- Vísindasjóður 1,5% af dagvinnulaunum valkvætt gjald
- Framlag í VIRK, starfsendurhæfingarsjóð er 0,1% af heildarlaunum og er innheimt af lífeyrissjóði
Iðgjaldaskil
- Launagreiðendum ber að senda inn skilagreinar fyrir hvern launamánuð með sundurliðun á öllum iðgjöldum fyrir hvern launþega til BHM, merkt stéttarfélagi. Senda skal inn skilagreinar fyrir gjalddaga.
- Gjalddagi er 15. dagur næsta mánaðar eftir launamánuð en eindagi er síðasti virki dagur gjalddaga mánaðar.
- Áríðandi er að rétt númer og heiti stéttarfélags komi fram á hverri skilagrein.
- Kröfur stofnast í netbanka þegar skilagrein hefur borist, nema óskað hafi verið eftir öðrum greiðslumáta eða ef ávallt hefur verið millifært. Eigi greiðsla sér ekki stað fyrir eindaga eru reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags.
- Bókunar- og innheimtumiðstöð BHM óskar eftir að fá allar skilagreinar sendar með rafrænum hætti
Tölvupóstur og bréfpóstur
Netfang: skilagreinar@bhm.is
Ekki er mælt með sendingu skilagreina í bréfpósti, en ef þess gerist þörf er póstfangið:
Bandalag háskólamanna v/BIB
Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Senda má skilagrein rafrænt með XML (sjá slóð á skilagrein.is) eða með SAL færslu á netfangið skilagreinar@bhm.is. Launþeginn verður að vera merktur með réttu stéttarfélagsnúmeri (Viska 679), réttum innheimtuaðila (BHM 2999) og gildum færslutegundum svo hægt sé að senda rafrænt.
Ekki er þörf á notendanafni og lykilorði (veflykli) og úthlutar BHM því ekki neinum lykilorðum.
Rafrænt skilagreinaform er á vef BHM.
Sjálfstætt starfandi og smærri fyrirtæki á almenna vinnumarkaðnum sem ekki skila iðgjöldum inn beint úr launakerfi, geta skilað iðgjöldunum inn í gegnum ofangreint rafrænt skilagreinaform. Formið er einfalt í notkun og birtist útreikningur sjálfkrafa.
Rafræna skilagreinaformið er aðeins fyrir launþega á almennum vinnumarkaði, nota verður annan sendingarmáta fyrir aðra launþega.
Notendur þurfa að ákveða í hvaða sjóði þeir ætla ekki greiða, með því að haka við þá sjóði sem þeir vilja sleppa. Athugið að færa þarf inn upphæð í báða launadálka þar sem vísindasjóður er reiknaður af dagvinnulaunum, þó svo að um sömu launaupphæð sé að ræða.
Einnig er nauðsynlegt að fara vel yfir upplýsingarnar áður en ýtt er á "senda" hnappinn. Kvittun sendist á uppgefið netfang þegar iðgjöldin hafa verið send.
Fylla þarf út skilagreinaformið mánaðarlega, þ.e. fyrir hvern launamánuð.
Ekki er tekið við núll skilagreinum, ef engar tekjur eru tiltekinn mánuð er skilum sleppt fyrir þann mánuð.
Algengar spurningar
Hægt er að lesa meira um iðgjaldaskil og skilagreinar á vefsíðu BHM.