Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Framboð til stjórnar

          Sveinn Ólafs­son

          Ég býð mig fram til stjórnar Visku 2026. Kjörtímabilið mun markast af undirbúningi kjaraviðræðna, þar sem samningar renna út hjá flestum okkar 31. mars 2028.

          Sveinn Ólafsson.png

          Ég er ritari Visku og auk þess formaður kjaranefndar BHM. Ég hef mikla reynslu af samningamálum, vann með aðalsamninganefnd BHM 2011, 2015 og 2019 auk samninga fyrir hönd SBU. Ég sat í stjórn SBU 2009 til 2016, var formaður þar 2011-2013 og gerðist ritstjóri fagtímaritsins Bókasafnið 2016-2019. Ég kom aftur í stjórn SBU 2019 og var orðinn varamaður þar þegar Viska var stofnuð. Þegar gengið var til stofnunar Visku, varð ég varamaður í stjórn Visku og var síðan kjörinn í stjórn í fyrstu kosningunum til eins árs.

          Ég er með meistaragráðu í upplýsingafræði frá árinu 2000 og aðra í stjórnsýslufræði frá 2024. Ég vinn sem skjalastjóri hjá Samgöngustofu og hef umsjón með bókasafni. Síðastliðin 30 ár hef ég unnið í bókasöfnum, við rafræn gögn og skjalastjórnun. Skjalastjórnun hefur verið aðalviðfangsefni síðan 2012. Á þessum tíma hef ég einnig kennt á Bifröst, í HÍ og KHÍ, og skrifað greinar og bók um fag mitt.

          Ég býð fram reynslu af kjara- og samningamálum sem ég veit að verða efst á baugi, bæði í haust, þegar semja verður um aðgerðir vegna verðbólgu, og síðan í auknum mæli fram til vorsins 2028, þegar samningar verða lausir.

          Bestu kveðjur, Sveinn Ólafsson.

          Kjóstu hér