Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Starf­send­ur­hæf­ing VIRK

          Félagsfólk í Visku hefur aðgang að þjónustu VIRK starfsendurhæfingarsjóðs. VIRK eflir starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði.

          Hvað er VIRK?

          Tilgangur með þjónustu á vegum VIRK er að aðstoða fólk við að komast til vinnu. Um er að ræða markvissa einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem krefst fullrar þátttöku viðkomandi einstaklings.

          Þjónusta VIRK er til staðar á öllum helstu þéttbýlisstöðum landsins, er einstaklingsmiðuð og einstaklingum að mestu að kostnaðarlausu. Á vegum VIRK starfa um 60 sérhæfðir ráðgjafar og atvinnulífstenglar staðsettir hjá stéttarfélögum víða um land og í Borgartúni 18 sem fylgja notendum þjónustunnar allan starfsendurhæfingarferilinn og hvetja þá áfram. 

          Einstaklingur sem óskar eftir þjónustu VIRK þarf að byrja á að panta tíma hjá lækni og ræða við hann hvort starfsendurhæfing hjá VIRK sé raunhæfur kostur. Ef læknirinn telur starfsendurhæfingu viðeigandi þá sendir hann beiðni til VIRK.

          Horfðu á stutt myndband um starfsendurhæfingarferlinn hér.

          Meginskilyrði fyrir stafsendurhæfingu

          • Að viðkomandi geti ekki sinnt starfi sínu að hluta eða öllu leyti eða tekið þátt á vinnumarkaði vegna hindrana af völdum heilsubrests sem rekja má til veikinda eða slysa.
          • Um er að ræða fjarvistir frá vinnu í lengri tíma vegna heilsubrests af andlegum eða líkamlegum toga.Að markmið einstaklings sé að verða aftur virkur þátttakandi á vinnumarkaði, eða auka þátttöku á vinnumarkaði, svo fljótt sem verða má.
          • Að geta og vilji sé til staðar til að taka markvissan þátt í starfsendurhæfingunni og fylgja þeirri áætlun sem þar er sett fram.

          Lestu meira um rétt til þjónustu á vefsíðu VIRK.

          Aðrir styrkir og sjóðir

          Maður stendur við handrið

          Lík­ami og sál

          Félagsfólk í Visku getur fengið fjárhagslega aðstoð vegna heilbrigðisþjónustu eða langvarandi fjarveru frá vinnu vegna veikinda. 

          Ung kona í gróðurhúsi í tölvu

          Or­lofs­sjóð­ur

          Félagsfólk í Visku á aðild að Orlofssjóði BHM, sem leigir félögum orlofshús og íbúðir um land allt, og býður upp á gjafabréf í flug, útilegu- og veiðikortið og ferðaávísanir.

          Kona stendur við handrið og horfir ekki í myndavél

          Starfs-og end­ur­mennt­un

          Vegna sífelldra breytinga á vinnuumhverfi og verkefnum er mikilvægt að fólk geti stöðugt aflað sér nýrrar þekkingar og hæfni. 

          Stytta af manni hugsa

          Vís­inda­sjóð­ur

          Aðild að Visku opnar á úthlutun úr Vísindasjóði félagsins en sjóðnum er ætlað að vera kaupauki fyrir félaga sem greiddur er út í febrúar