Sigrún Einarsdóttir
Ég býð mig fram til áframhaldandi setu í stjórn Visku.

Ég hef tekið þátt í að byggja félagið upp frá grunni og setið í stjórn Visku frá stofnun ásamt því að sitja í stjórn BHM sem gjaldkeri. Það hefur verið mikill heiður að standa að þeirri vegferð og vera hluti af þeim krafti sem einkennir félagið.
Undanfarið ár höfum við stóreflt hagsmunagæslu og greiningar, m.a. um stöðu og kaupmátt launafólks og eftir því hefur verið tekið. Ég tel okkur vera rétt að byrja.
Við höfum stofnað óhagnaðardrifið húsnæðisfélag, fyrst stéttarfélaga háskólamenntaðra. Með uppbyggingu Visku stúdentakerfisins höfum við stóreflt tengsl okkar við stúdentahreyfinguna, aukið þjónustu við ungt fólk og byggt brú inn í félagið til framtíðar.
Viska er leiðandi afl innan BHM, ekki síst á almenna markaðnum. Viska er ungt félag með mikinn slagkraft, félag sem ég vil halda áfram að byggja upp með þér og bið því um þinn stuðning til áframhaldandi stjórnarsetu.
Með reynslu minni vil ég áfram leggja mitt af mörkum til að Viska verði áfram framsækið félag að norrænni fyrirmynd.
Takk fyrir stuðninginn og munið að kjósa!
Baráttukveðja,
Sigrún Einarsdóttir