Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Framboð til stjórnar

          Íris Halla Guð­munds­dótt­ir

          Ég heiti Íris Halla Guðmundsdóttir og hef ákveðið að bjóða mig fram til stjórnarsetu í Visku.

          Íris Halla

          Kæru félagsmenn

          Ég óska eftir stuðningi ykkar og vil leggja mitt af mörkum til að efla réttindi, kjör og þjónustu félagsmanna.

          Menntun mín er BA-próf í uppeldis- og menntunarfræðum, MA-próf í náms- og starfsráðgjöf og MA-próf í mannauðsstjórnun frá árinu 2022, allt frá Háskóla Íslands.

           Síðustu 14 ár hef ég starfað hjá Vinnumálastofnun og öðlast víðtæka reynslu af ráðgjöf, mannauðsmálum og verkefnum tengdum fjölmenningu. Reynslan mín hefur kennt mér hversu mikilvægt er að félagsmenn hafi sterka málsvara sem vinna markvisst að hagsmunum þeirra.

          Ef þið veitið mér traust til stjórnarsetu mun ég leggja sérstaka áherslu á:

          • Að menntun félagsmanna sé metin til launa
          • Að tryggja rétt til að sinna öldruðum foreldrum á vinnutíma án neikvæðra áhrifa á laun eða starfsskyldur
          • Að sameina styrktarsjóði í einn sveigjanlegan sjóð sem félagsmenn geta nýtt á þann hátt sem hentar þeim best, til fjölbreyttrar þjónustu (svo sem fjölskyldutengda) sem styður við velferð og starfsgetu.

          Ég er sannfærð um að Viska geti haldið áfram að vaxa og styrkjast með skýrri stefnu og samstöðu. Mig langar að taka virkan þátt í þeirri uppbyggingu með ykkur.