Íris Dögg Björnsdóttir
Ég heiti Íris Dögg og eitt af því sem ég brenn hvað helst fyrir eru réttindi og velferð einstaklinga. Ég hef hingað til prófað að vera beggja vegna borðsins, bæði sem mannauðssérfræðingur og sem meðlimur stjórnar FÍF, sem er einmitt eitt af stofnfélögum Visku, en ég sat í stjórn FÍF 2019-2023 m.a. sem ritari og varaformaður.

Ég var líka í Jafnréttisnefnd BHM í tvö ár frá 2018-2020, seinna árið sem formaður.
Eftir að hafa prófað að vera beggja vegna borðsins hef ég komist að þeirri niðurstöðu að ég á frekar heima stéttarfélags meginn við borðið og því gef ég kost á mér til stjórnarsetu í Visku. Fyrir utan 8 ára reynslu í mannauðsmálum og samtals 5 ára reynslu af trúnaðarstörfum fyrir BHM og FÍF þá er ég líka spenglærð með BA í Félagsfræði, MS í Stjórnun og stefnumótun og svo hef ég lokið öllum áföngum í Msc. í Mannauðsstjórnun. Ég tel að þessi menntun og reynsla gefi mér innsýn í vinnumarkaðinn sem ekki allir hafa og getur nýst stjórn mjög vel á komandi árum.
kveðja, Íris.