Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Framboð til stjórnar

          Freyr Snorra­son

          Ég heiti Freyr Snorrason, er 28 ára gamall og bý á Hlíðarenda í Reykjavík með unnustu minni og tveggja ára syni okkar. Ég er menntaður borgarfræðingur og starfa á skipulagsdeild Kópavogsbæjar.

          Freyr Snorrason

          Með framboði mínu í stjórn Visku vil ég leggja áherslu á ungt fólk og að styrkja stöðu háskólamenntuðu millistéttarinnar.

          Kaupmáttur ungs fólks með háskólamenntun hefur staðið í stað í tuttugu ár þrátt fyrir stóraukið menntunarstig. Jafnframt er menntun ekki metin til launa á Íslandi. Það er staðreynd sem þarf að leiðrétta. Því verður háskólamenntaða millistéttin að eiga öflugt og burðugt stéttarfélag sem sinn málsvara og sem er leiðandi afl í kjaramálum á Íslandi.

          Á þessum grundvelli þarf Viska að stækka og styrkjast sem stéttarfélag með fjölgun félagsmanna. Þannig verður félagið að raunverulegu afli í lífskjarabaráttu venjulegs launafólks. Verkalýðsfélög á 20. öldinni voru leiðandi umbótasinnuð öfl í lífskjara-, húsnæðis- og velferðarmálum, Viska getur orðið það félag á 21. öld, t.a.m. með stofnun húsnæðisfélags eins og er á teikniborðinu.

          Brýnt er að gera sjóði og styrki Visku sýnilegri og hvetja félagsmenn til að nýta þá markvisst sem kjarabætur. Jafnframt ætti Viska að beita sér fyrir sanngjarnara námslánakerfi sem skilur fólk ekki eftir í skuldafangelsi að námi loknu.

          Bestu kveðjur, Freyr Snorrason