Ellen Calmon
Ég býð mig fram til stjórnar Visku með áherslu á húsnæðismál og hagsmuni félagsfólks á síbreytilegum markaði. Fram undan eru stór verkefni, bæði í kjarasamningum og í tengslum við samstarf Visku og FÍN um stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags.

Staða margra félagsmanna er erfið; margir eru fastir á leigumarkaði og stór hluti þarf fjárhagslega aðstoð til að komast inn á húsnæðismarkað.
Ég hef aflað mér sérþekkingar á húsnæðismálum í gegnum meistaraverkefnið mitt þar sem ég rannsakaði ábyrgð stjórnvalda í kjölfar náttúruhamfara. Þá starfaði ég að húsnæðismálum fyrir Grindavíkurbæ eftir rýmingu bæjarins og kom að lausnum við krefjandi aðstæður. Í því samhengi vann ég náið með Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og ráðuneytum og öðlaðist dýrmæta innsýn í samspil opinberra aðila og markaðarins.
Þá hef ég fylgst náið með húsnæðisuppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu og tekið þátt í stefnumótun sem snertir framboð, aðgengi og félagslegt réttlæti. Ég hef víðtæka reynslu af félagsstörfum og stjórnarsetu, þar sem ég hef lagt áherslu á ábyrga stjórnarhætti og skýra hagsmunagæslu. Ég er með B.Ed gráðu og útskrifaðist með MPA gráðu frá Háskóla Íslands í febrúar síðastliðnum.
Ég vil leggja mitt af mörkum til að styrkja rödd félagsfólks Visku í húsnæðismálum og stuðla að raunhæfum lausnum sem bæta stöðu þess til framtíðar.
Endilega verið í sambandi calmonellen@gmail.com eða í síma 6947864