Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Framboð til stjórnar

          Eð­vald Ein­ar Stef­áns­son

          Ég býð mig fram til stjórnar Visku með skýra sýn á að bæta réttindi, kjör og að efla þjónustu við félagsfólk.

          Eðvald Einar

          Ég hef starfað á mjög fámennum vinnustað og starfa nú á Landspítalanum sem er einn sá fjölmennasta þannig að ég hef góða innsýn í ólíkar aðstæður á vinnumarkaði. Reynslan hefur kennt mér að þó vinnuumhverfi sé mismunandi, þá er grunnþörfin sú sama, sanngjörn kjör, skýr réttindi og traustur stuðningur þegar á reynir.

          Ég hef verið opinber starfsmaður í rúm 20 ár og verið í stjórn Visku frá stofnun félagsins og  hef á þeim tíma kynnst mikilvægi öflugrar hagsmunagæslu og faglegra vinnubragða. Ég brenn fyrir kjaramálum og réttindum háskólamenntaðra á vinnumarkaði og vil halda áfram að leggja mitt af mörkum til að þau mál séu ávallt í forgrunni.

          Ég tel að stéttarfélag eigi ekki aðeins að standa sterkt í samningum, heldur einnig að veita góða, aðgengilega og trausta þjónustu. Félagsfólk á að geta treyst því að fá faglega ráðgjöf og stuðning þegar á reynir og að félagið tali fyrir þeirra hagsmunum í samfélaginu.

          Ég vil halda áfram að vinna af ábyrgð, festu og heiðarleika fyrir hagsmunum félagsfólks Visku og treysti á þinn stuðning.