Ásdís Guðmundsdóttir
Á starfsferli mínum hef ég sinnt fjölbreyttum verkefnum sem tengjast bæði stefnumótun, þjónustu og hagsmunagæslu.

Ég starfaði um árabil hjá stéttarfélögum í Skagafirði, bæði sem formaður verkakvennafélagsins Öldunnar og síðar skrifstofustjóri Verkalýðsfélagsins Fram (nú Aldan-stéttarfélag) þar sem ég sinnti meðal annars fræðslumálum, upplýsingagjöf um réttindi, umsýslu sjóða og undirbúningi kjarasamninga. Sú reynsla sýndi mér mikilvægi öflugrar þjónustu við félagsmenn og gagnsærrar og faglegra stjórnarhátta.
Undanfarin 18 ár hef ég starfað sem verkefnastjóri og ráðgjafi hjá Vinnumálastofnun, m.a. við þróun verkefna sem styðja frumkvöðlastarf og atvinnuþátttöku kvenna, ásamt því að vinna að alþjóðlegum samstarfsverkefnum og sinna námskeiðshaldi af ýmsu tagi. Ég hef þar öðlast víðtæka reynslu af samstarfi, stefnumótun og verkefnastjórnun sem nýtist vel í stjórnarstarfi.
Það er mikilvægt að félagið sé sýnilegt og aðgengilegt félagsfólki, og að það fái stuðning á öllum stigum, hvort sem það er að hefja störf á vinnumarkaði eða á leiðinni á eftirlaun. Ennfremur er mikilvægt að huga að nýsköpun í þjónustu félagsins í síbreytilegu samfélagi þar sem þarfir félagsfólks breytast ört.
Ég tel mig hafa þekkingu, reynslu og drifkraft til að leggja mitt af mörkum í stjórn félagsins og nýta mína krafta til góðs.