Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Félagsnet

          Fé­lagsnet tal­meina­fræð­inga

          Talmeinafræðingar starfa í leikskólum, skólum, á sjúkrahúsum, endurhæfingarstöðvum, greiningarteymum og á eigin stofum. Talmeinafræðingar í Visku geta skráð sig í félagsnet talmeinafræðinga.

          Félagsnet talmeinafræðinga innan Visku er vettvangur þeirra sem vilja starfa að kjaramálum talmeinafræðinga. Megintilgangur hópsins er að standa vörð um kjör og réttindi talmeinafræðinga og endurmenntun þeirra. 

          Talsmaður talmeinafræðinga í fulltrúaráði Visku er Heiða Sigurjónsdóttir.

          Hver erum við?

          Talmeinafræðingar starfa í leikskólum, skólum, á sjúkrahúsum, endurhæfingarstöðvum, greiningarteymum og á eigin stofum. Talmeinafræðingar vinna í nánu samstarfi við kennara, lækna, sálfræðinga og aðrar uppeldis-og heilbrigðisstéttir. Skjólstæðingar eru á öllum aldri, allt frá ungabörnum til aldraðra.

          Talmeinafræði er fag í stöðugri þróun sem fylgir framförum og nýjungum innan heilbrigðis- og menntakerfisins. Talmeinafræðingar leggja mikla áherslu á endurmenntun og rannsóknir í störfum sínum.