Beint í efni
Kona situr við tölvu og horfir í myndavél á bókasafni

Þjón­usta Visku

Nýttu þér persónulega ráðgjöf okkar sérfræðinga varðandi allt sem tengist kjaramálum, réttindum og starfsþróun.

Gott sam­band við launa­greið­end­ur

Viska leggur áherslu á gott samstarf við launagreiðendur síns félagsfólks. Slíkt samstarf er bæði félagsfólki og vinnuveitendum í hag. Hér á vefnum er sérstök upplýsingasíða fyrir launagreiðendur og þeim er einnig velkomið að senda okkur fyrirspurn.

Fólk að tala saman á bryggju og benda
Kjaramál

Þín rétt­indi

Á starfsævinni geta komið upp margvíslegar aðstæður þar sem mikilvægt er að þekkja sín kjara- og réttindamál vel. Hér er hægt að kynna sér vinnurétt allt frá ráðningu til starfsloka.

Ungur maður situr og drekkur kaffi og horfir út um gluggann

Sjálf­stætt starf­andi

Við hjá Visku leggjum okkur fram um að taka vel á móti einstaklingum sem starfa sjálfstætt. Sífellt fleiri kjósa að vera sjálfstætt starfandi enda hefur það marga kosti að geta stjórnað bæði vinnutíma sínum og starfsumhverfi.

Fræðsla og nám­skeið

Með símenntun bætir þú stöðu þína á vinnumarkaði, eykur starfsöryggi þitt og starfsánægju. Viska býður félagsfólki sínu upp á fjölbreytt úrval námskeiða og fræðslufyrirlestra.

Ung kona og maður tala saman á kaffihúsi